SVEF, Samtök vefiðnaðarins, boða til Iceweb 2008, alþjóðlegrar ráðstefnu um vefmál, sem fer fram dagana 13.-14. nóvember.
Ráðstefnan fer fram á 20. hæð í Turninum, við Smáratorg í Kópavogi.
Yfirskrift ráðstefnunnar er „Breytingar“ (Change) sem vísar til þess að vefurinn er bæði í stöðugri mótun og umbreytingum, en einnig til þess að starf fólks í vefiðnaðinum tekur jafn örum breytingum.
Vefiðnaðurinn er óumdeilt einna best í stakk búinn til að bregðast við breytingum í viðskiptaumhverfi heimsins.
Meðal þeirra heimsþekktu fyrirlesara sem nú þegar hafa staðfest komu sína eru:
- Kathy Sierra, Opening keynote speaker. Creating passionate users.
- Chris Mills, einn af aðal umsjónarmönnum Dev.Opera
- James Cridland, BBC. Nýmiðlun í gegnum vefinn.
- Per Rasmussen, eCapacity, vefstefnumótandi

